

| Þú ert á: Happdrætti & Uppboð | *Smelltu á fyrirtækjatengil til að versla |
| Happdrætti HÍ | |
|---|---|
| Happdrætti
Háskóla Íslands er alfarið í eigu Háskóla Íslands og rekið með það að
markmiði að afla fjár til byggingaframkvæmda og tækjakaupa fyrir
Háskólann. Hægt er að kaupa miða á vef happdrættisins og kostar
einfaldur miði 900 krónur á mánuði en trompmiði 4.500 krónur á mánuði.
|
![]() |
| Happdrætti SÍBS | |
|---|---|
| Happdrætti SÍBS er kjölfesta alls starfs SÍBS og
er hægt að kaupa miða á vef félagsins og kostar miðinn 900 krónur. |
![]() |
| Íslensk Getspá | |
|---|---|
| Hluti af andvirði hvers Lottómiða rennur beint til uppbyggingar og
starfsemi æskulýðs-og íþróttamála og til málefna öryrkja. Því má segja
að allir þeir sem spila í lottóinu geti fagnað sigri og átt von á
góðum vinningi í leiðinni. Íslensk getspá er í eigu Íþrótta-og
ólympíusambands Íslands, Öryrkjabandalags Íslands og Ungmennafélags
Íslands. |
![]() |
| Íslenskar Getraunir | |
|---|---|
| 1x2 er 13
leikja getraunaseðill sem tekur til úrslita í enskri knattspyrnu á
veturna en sænskri á sumrin. Frá árinu 1991 hafa Íslenskar Getraunir
verið í samvinnu með Svenska Spel í Svíþjóð með þennan getraunaseðil.
Hagnaður af starfsemi getraunaleiksins rennur til íþrótta- og
ungmennafélaga í landinu. |
![]() |
| Kassi.is | |
|---|---|
| Vefurinn kassi.is
er uppboðsvefur fyrir þá sem vilja versla á nútímalegan og þægilegan
hátt heima í stofu fyrir framan tölvuna sína. Hér getur þú skoðað,
keypt eða selt vörur eða þjónustu án þess að þurfa að finna bílastæði
eða standa í röð. Þér er frjálst að vafra um að vild til að skoða
notaðar eða nýjar vörur. En þegar kemur að að fara að selja eða bjóða
í vöru þarft þú að vera skráður notandi. Það er frítt að vera skráður
notandi á kassi.is |
![]() |