Þú ert á: Skóli & Skrifstofuvörur *Smelltu á fyrirtækjatengil til að versla
A4
Hjá A4 leggjum við metnað okkar í það að vera í fararbroddi á sviði skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og við leggjum áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það sameiginlegt að vera öll í háum gæðaflokki.

>> a4.is
a4.is
Boði ehf
Boði ehf. hefur verið leiðandi á íslenska stimplamarkaðnum í yfir hálfa öld og hefur haft gæði og þjónustu að leiðarljósi. Við framleiðum alla okkar stimpla úr náttúrulegu gúmmíi, á umhverfisvænan hátt, án efnamengunar og flytjum sjálfir inn allt okkar efni til að tryggja lægsta verðið til þín. Þar að auki skerum við út og merkjum á nánast allt sem brennur eða bráðnar, s.s. Plexy, plast, málma og tré.
Við höfum áunnið okkur traust hinna kröfuhörðustu viðskiptavina, enda er Boði "Stimplaður fyrir Gæði"

>> bodi.is
bodi.is
Múlalundur
Múlalundur er stærsta og elsta öryrkjavinnustofa landsins þar sem öryrkjar njóta endurhæfingar ásamt því að framleiða og selja mest allra af bréfabindum og lausblaðabókum. Múlalundur hefur svarað vaxandi kröfum markaðarins, enda hefur framleiðslan aflað sér trausts og vinsælda. Um leið hefur eftirspurnin skapað möguleika á að auka fjölbreytni framleiðslunnar.

>> mulalundur.is
mulalundur.is
Oddi
Oddi er í hópi fullkomnustu og fjölhæfustu prentsmiðja á Norðurlöndum ásamt því að reka öfluga söludeild með skrifstofuvörur. Oddi einbeitir sér að þjónustu við fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga varðandi: prentun og útgáfu lausnir á allri rekstrarvöruþörf skrifstofunnar varðveislu rafrænna prentgagna. Oddi rekur öfluga netverslun þar sem til sölu eru skrifstofuvörur og tæknivörur.

>> oddi.is
oddi.is
Office1
Office1 á Íslandi er hluti af alþjóðlegri keðju Office1 verslana sem nú eru yfir 400 í 24 löndum. Þessi samvinna gefur Office1 á Íslandi möguleika á að bjóða hagstæðara verð til neytenda í krafti sameiginlegra innkaupasambanda Office1 keðjunnar.

>> office1.is
office1.is
Penninn
Penninn er verslunarfyrirtæki sem þjónar bæði fyrirtækjum og einstaklingum með það að leiðarljósi að viðskiptavinir geti ætíð gengið að þægilegri og fjölbreyttri þjónustu í samræmi við þarfir hvers og eins. Vöruframboð Pennans er á sviði skrifstofuvara og afþreyingar s.s. Bóka, tímarita, myndbanda og geisladiska.

>> penninn.is
penninn.is