Þú ert á: Um vefinn

 

Netverslanir.is - Allar íslenskar netverslanir á einum stað

Velkominn á Netverslanir.is, upplýsingatorg þar sem íslenskar og erlendar netverslanir - vefverslanir koma saman á einum stað. Hér getur þú tengst við 195 íslenskar verslanir í 19 flokkum.

Til að versla á Netverslanir.is þarf eingöngu að smella á tengil fyrir það fyrirtæki sem þú vilt versla hjá.

Það er ekkert þægilegra en að versla heima hjá sér á öruggan hátt þegar þér hentar. Verslanirnar sem hér eru samankomnar eiga það sameiginlegt að ábyrgjast öryggi í viðskiptum og því er hægt að treysta á að viðskiptin fari örugglega og þægilega fram.

Markmið Netverslanir.is

Markmið Netverslanir.is er að bjóða viðskiptavinum upp á þægilegan vef sem hýsir tengla inn á hagkvæmar og öruggar íslenskar vefverslanir.

Vefsvæðið Netverslanir.is er uppfært reglulega og því eru stöðugt að bætast við nýjar, áhugaverðar og öruggar netverslanir..

Að lokum viljum við þakka fyrir heimsóknina og vonumst til að sjá þig fljótlega aftur. Megir þú eiga ánægjuleg netviðskipti.

Rekstraraðili
Vefsvæðið Netverslanir.is er rekið af Íslandspósti.